HSSH

Velkominn á heimasíðu Hjálparsveitar Skáta í Hveragerði.

27.01.2012 21:39

Útkall á Hellisheiði í dag

Í morgun voru hjálparsveitarmenn frá Hveragerði kallaðir til aðstoðar við fólk sem var í vandræðum á Hellisheiði vegna ófærðar.

Mikið var af bílum í vandræðum og voru kallaðar út aðrar sveitir af svæði 3 sem og sveitir af svæði 1.

Komið var með um 40 manns í hús sveitarinar í Hveragerði þar sem fólkið hafði ekki í önnur skjól að leita.

24.01.2012 14:20

Unglingadeildarferð endaði í útkalli

Í gær var farið með unglingadeild HSSH í æfingaferð niður í Þrengsli. 
Þegar  stefna átti heim kom beiði um að aðstoða bíla við litlu kaffistofuna en um 15 bílar voru aðstoðaðir.

Það var  stórt bross á krökkunum í unglingadeild HSSH þegar þeir kom heim eftir að hafa farið í sitt fyrsta útkall.

hér má sjá frétt af sunnlenska.is


18.01.2012 19:20

Þjónustusamningur við HSSH og Hveragerðisbæjar endurnýjaður

Samningnum er ætlað að tryggja enn frekar starfsemi HSSH, enda er bæjarstjórn Hveragerðisbæjar þeirrar skoðunar að félagið sinni öflugu félags- og forvarnarstarfi ásamt því að vera mikilvægur hlekkur í öryggismálum bæjarbúa. Heildarverðmæti samningsins eru um 9 milljónir.

Samningi þessum er ætlað að efla samstarf bæjaryfirvalda í Hveragerðisbæ og Hjálparsveitar skáta í Hveragerði (HSSH) og þannig tryggja öflugt almannavarna, félags- og öryggisstarf í Hveragerði. Sveitin mun áfram standa fyrir flugeldasýningum við hátíðleg tækifæri ásamt því að sinna gæslu og umferðastjórnun á bæjarhátíðum. HSSH stendur fyrir ýmiskonar fræðsluverkefnum á sviði forvarna fyrir ýmsa aldurshópa. Samningurinn gildir til ársloka 2014.


Frétt af hveragerdi.is


Það er mikil viðurkenning á starfi HSSH að fá þjónustusamnig eins og HSSH og Hveragerðisbær skrifuð undir í gær. Þetta tryggir félaginu  fjármagn til að sinna hlutverki sínu. 

Gott samsarf hefur verðið milli HSSH og Hveragerðisbæjar. 

f.h HSSH 

Lárus Kristinn 

formaður HSSH 



15.01.2012 14:47

Undirskrift á samning við Hveragerðisbæ

Sæl öll 

Þriðjudaginn 17.jan verður skrifað undir þjónustusamning við Hveragerðisbæ. 


Stjórn bið félaga að koma í merktum fatanði. 

kv stjórn 

13.01.2012 18:48

Tugir bíla fastir við Sandskeið

Um miðnætti í gær voru björgunarsveitir frá Hveragerði, Reykjavík og Kópavogi kallaðar út vegna ökumanna sem voru í vandræðum á nýja vegkaflanum fyrir neðan Litlu kaffistofuna við Sandskeið.
Björgunarsveitir aðstoðuðu á þriðja tug ökumanna er höfðu fest bíla sína.





Alls sendi HSSH 2 bíla og um 8 félagar frá HSSH tók þátt í aðgerðum í gær.

10.01.2012 23:23

HSSH aðstoðar bíla og við lokun

Í gær kvöld um kl 21 var HSSH kallað út til aðstoðar bílum á Hellisheiði. Margir bílar voru þar i vandræðum sveitir frá Þorlákshöfn, Selfossi, Bakkanum og Höfuðborgarsvæðinu aðstoðu við verkefnið. 
HSSH sendi 2 bíla til aðstoðar á Hellisheiði sem og að félagar HSSH voru til aðstoðar í fjöldahjálpar stöð Rkí sem var opnuð í Hveragerði fyrir fólk sem ekki komst leiðar sinnar.

Björgunarsveitir sá svo um lokun á Hellisheiði bæði við Hveragerði og við þrengsla vegamót. 
Núna þegar þetta er skrifað eru bílar frá Hveragerði og Þorlákshöfn enþá í lokunarverkefnum þegar sólahringur er frá því að Hellisheiði lokaðist. 

Þessi mynd var tekinn við Hveragerði í dag.

05.01.2012 15:06

Ótitlað


                                                      
Félagar í hjálparsveit skáta í Hveragerði vilja þakka öllum þeim sem styrktu starf okkar með kaupum á flugeldum fyrir þessi áramót.
Eins viljum við þakka öllum sem hafa styrkt starf okkar á síðasta ári með allskyns hætti.
Það var gaman að sjá hversu mikil velvilji var í garð Björgunasveita.

Þess má geta að félagar HSSH fór í 63 útköll á árinu og skiluð um 11.500 vinnustundum á síðasta ári í formi æfinga, útkalla,námskeiða, fjáröflunar og annar verkefna á vegum HSSH.

Við hlökkum til að takast á við nýja árið sem verður án efa viðburðaríkt líkt og liðna árið.

fyrir hönd félaga í HSSH 
Lárus Kristinn Guðmundsson 
formaður HSSH

p.s. flugeldasalan er opin 
fimmtudaginn 5.jan frá 18-22
föstudaginn 6.jan frá 14-20.

góður afsláttur af öllum vörum. 

27.12.2011 11:24

Flugeldasala

Flugeldasala

Opnunartímar:

28. desember - 10:00 - 22:00

29. desember - 10:00 - 22:00

30. desember - 10:00 - 22:00

31. desember (gamlársdagur) 10:00 - 16:00.

Við erum í Austurmörk 9.

Sími í flugeldasölu er 483-4555

24.12.2011 12:03

Ótitlað




 Stjórn Hjálparsveitar skáta í Hveragerði 

óskar þér gleðilegra jóla og þakkar ánægjulegt samstarf á árinu.

Meigi nýtt ár verða farsælt og hamingju ríkt. 


 

Minnum svo á að flugeldasala HSSH opnar 28.des. kl 10:00 

 

fyrir hönd stjórnar HSSH 

Lárus Kristinn Guðmundsson

formaður HSSH 



24.12.2011 10:39

frétt

Í nótt aðstoðaði Hjálparsveit skáta Hveragerði nokkra bíla á Hellisheiði sem lentu þar í vandræðum upp úr kl 5 í morgun, slæmmt verður var þar. 
Þegar félagar sveitarinar höðfu lokið við að aðstoða bíla á Hellisheiði í morgun kom símtal frá Jólasveinnum um að aðstoða þá við að dreyfa jólapökkum í Hveragerði þar sem þar var þungfært í morgun. 
Félagar í Hjálparsveita skáta fór því á 2 sérútbúnum björgunarsveitarbílum til að aðstoða þá og því komast allar gjafir til skila.

13.12.2011 21:55

Jólatréssala



Fyrstaflokks tré á fyrstaflokks verði

Opnunartímar


Föstudagurinn 23.Des frá frá 16:00-21:00

Skutlum trjánum frítt til þín.

Hægt er að hringja og panta tré hjá okkur.

Nóg er til af fallegum trjám.

Upplýsingar í 899-4113 eða 899-4112



    Flettingar í dag: 55
    Gestir í dag: 21
    Flettingar í gær: 135
    Gestir í gær: 45
    Samtals flettingar: 380733
    Samtals gestir: 76353
    Tölur uppfærðar: 9.2.2012 10:02:55

    Vafraðu um

    clockhere

    HSSH

    Nafn:

    Hjálparsveit Skáta Hveragerði

    Farsími:

    899-4112 eða 899-4113

    Afmælisdagur:

    23.September

    Heimilisfang:

    Austurmörk 9

    Staðsetning:

    Hveragerði

    Heimasími:

    483-4555

    Um:

    Hjálparsveit Skáta Hveragerði var stofnuð 23. September 1975 með það að markmiði að vinna að björgun manna og verðmæta og veita hvers konar aðstoð í neyðartilvikum, þar sem tæki og þekking HSSH getur komið að notum og taka þátt í skipulögðu almannavarnastarfi. Sveitin er opin öllum þeim er vilja stuðla að þessum markmiðum. Fundir Sveitarinnar eru alla þriðjudaga kl 20:00 Fundir Unglingadeildar eru alla Mánudaga kl 20:00

    Kennitala:

    580876-0139

    Tenglar

    Dagskrá