27.01.2012 21:39
Í morgun voru hjálparsveitarmenn frá Hveragerði kallaðir til aðstoðar við fólk sem var í vandræðum á Hellisheiði vegna ófærðar.
Mikið var af bílum í vandræðum og voru kallaðar út aðrar sveitir af svæði 3 sem og sveitir af svæði 1.
Komið var með um 40 manns í hús sveitarinar í Hveragerði þar sem fólkið hafði ekki í önnur skjól að leita.
