27.01.2012 21:39
Í morgun voru hjálparsveitarmenn frá Hveragerði kallaðir til aðstoðar við fólk sem var í vandræðum á Hellisheiði vegna ófærðar.
Mikið var af bílum í vandræðum og voru kallaðar út aðrar sveitir af svæði 3 sem og sveitir af svæði 1.
Komið var með um 40 manns í hús sveitarinar í Hveragerði þar sem fólkið hafði ekki í önnur skjól að leita.

24.01.2012 14:20
Í gær var farið með unglingadeild HSSH í æfingaferð niður í Þrengsli.
Þegar stefna átti heim kom beiði um að aðstoða bíla við litlu kaffistofuna en um 15 bílar voru aðstoðaðir.
Það var stórt bross á krökkunum í unglingadeild HSSH þegar þeir kom heim eftir að hafa farið í sitt fyrsta útkall.
hér má sjá frétt af sunnlenska.is
18.01.2012 19:20
Samningnum er ætlað að tryggja enn frekar starfsemi HSSH, enda er bæjarstjórn Hveragerðisbæjar þeirrar skoðunar að félagið sinni öflugu félags- og forvarnarstarfi ásamt því að vera mikilvægur hlekkur í öryggismálum bæjarbúa. Heildarverðmæti samningsins eru um 9 milljónir.
Samningi þessum er ætlað að efla samstarf bæjaryfirvalda í Hveragerðisbæ og Hjálparsveitar skáta í Hveragerði (HSSH) og þannig tryggja öflugt almannavarna, félags- og öryggisstarf í Hveragerði. Sveitin mun áfram standa fyrir flugeldasýningum við hátíðleg tækifæri ásamt því að sinna gæslu og umferðastjórnun á bæjarhátíðum. HSSH stendur fyrir ýmiskonar fræðsluverkefnum á sviði forvarna fyrir ýmsa aldurshópa. Samningurinn gildir til ársloka 2014.
Frétt af hveragerdi.is
Það er mikil viðurkenning á starfi HSSH að fá þjónustusamnig eins og HSSH og Hveragerðisbær skrifuð undir í gær. Þetta tryggir félaginu fjármagn til að sinna hlutverki sínu.
Gott samsarf hefur verðið milli HSSH og Hveragerðisbæjar.
f.h HSSH
Lárus Kristinn
formaður HSSH


15.01.2012 14:47
Sæl öll
Þriðjudaginn 17.jan verður skrifað undir þjónustusamning við Hveragerðisbæ.
Stjórn bið félaga að koma í merktum fatanði.
kv stjórn
13.01.2012 18:48
Um miðnætti í gær voru björgunarsveitir frá Hveragerði, Reykjavík og Kópavogi kallaðar út vegna ökumanna sem voru í vandræðum á nýja vegkaflanum fyrir neðan Litlu kaffistofuna við Sandskeið.
Björgunarsveitir aðstoðuðu á þriðja tug ökumanna er höfðu fest bíla sína.


Alls sendi HSSH 2 bíla og um 8 félagar frá HSSH tók þátt í aðgerðum í gær.
10.01.2012 23:23
Í gær kvöld um kl 21 var HSSH kallað út til aðstoðar bílum á Hellisheiði. Margir bílar voru þar i vandræðum sveitir frá Þorlákshöfn, Selfossi, Bakkanum og Höfuðborgarsvæðinu aðstoðu við verkefnið.
HSSH sendi 2 bíla til aðstoðar á Hellisheiði sem og að félagar HSSH voru til aðstoðar í fjöldahjálpar stöð Rkí sem var opnuð í Hveragerði fyrir fólk sem ekki komst leiðar sinnar.
Björgunarsveitir sá svo um lokun á Hellisheiði bæði við Hveragerði og við þrengsla vegamót.
Núna þegar þetta er skrifað eru bílar frá Hveragerði og Þorlákshöfn enþá í lokunarverkefnum þegar sólahringur er frá því að Hellisheiði lokaðist.
Þessi mynd var tekinn við Hveragerði í dag.

05.01.2012 15:06
Félagar í hjálparsveit skáta í Hveragerði vilja þakka öllum þeim sem styrktu starf okkar með kaupum á flugeldum fyrir þessi áramót.Eins viljum við þakka öllum sem hafa styrkt starf okkar á síðasta ári með allskyns hætti.
Það var gaman að sjá hversu mikil velvilji var í garð Björgunasveita.
Þess má geta að félagar HSSH fór í 63 útköll á árinu og skiluð um 11.500 vinnustundum á síðasta ári í formi æfinga, útkalla,námskeiða, fjáröflunar og annar verkefna á vegum HSSH.
Við hlökkum til að takast á við nýja árið sem verður án efa viðburðaríkt líkt og liðna árið.
fyrir hönd félaga í HSSH
Lárus Kristinn Guðmundsson
formaður HSSH
p.s. flugeldasalan er opin
fimmtudaginn 5.jan frá 18-22
föstudaginn 6.jan frá 14-20.
góður afsláttur af öllum vörum.